Menningarerfðir og Katla Jarðvangur

21. - 23. janúar verða haldnir fjórir umræðu- og kynningarfundir á suðurlandi um óáþreyfanlegan menningararf (menningarerfðir) og sáttmála UNESCO um verndun hans. Fundirnir á Hvolsvelli og á Klaustri verða í samstarfi við Brynju Davísdóttur framkvæmdarstjóra Kötlu Jarðvangs sem fer yfir stöðu jarðvangsins eftir úttekt matsmanna og innleiðingu í UNESCO Global Geoparks 2015.
Menningarerfðir eru til dæmis þekking og kunnátta sem tengist reykingu, söltun og súrsun matvæla, hestamennsku, sauðfjárbúskap, vefnaði, kveðskap, þjóðdansi, þjóðbúningum, útskurði og eggjatöku; að kæsa hákarl, smíða trébát og vinna með ull. 

Fundirnir eru í tengslum við verkefni á vegum menntamálaráðuneytinsins en markmiðið með því er að 
• koma af stað umræðu um menningarerfðir
• fá hugmyndir um menningarerfðir sem fólkinu í landinu finnst mikilvægt að vernda 
• skrá félög/hópa/einstaklinga sem starfa á sviði menningarerfða 
• kynna sáttmála UNESCO um verndun menningarerfða en lykilatriði hans er að við sem landið byggjum segjum til um hvað eru menningarerfðir okkar og hvernig best sé að vernda þær.
 
Fundatímar: 
• Selfoss - í Fjölheimum, fimmtudaginn 21. janúar kl. 18:00
• Hvolsvöllur - Hótel Hvolsvöllur, föstudaginn 22. janúar kl. 11:30 
• Kirkjubæjarklaustur -  staðsetning óákveðin, föstudaginn 22. janúar kl. 20:00 
• Höfn í Hornafirði - staðsetning óákveðin, laugardaginn 23. janúar kl. 14:00


Hlökkum til að sjá ykkur

Guðrún Ingimundardóttir og Brynja Davíðsdóttir