- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Rótarýklúbbur Rangæinga í samvinnu við Landgræðsluna heldur málþing í Gunnarsholti þriðjudaginn 19. febrúar n.k.
Rótarýklúbbur Rangæinga hefur um nokkurt árabil haft fræðslu og umfjöllun um samfélagsmál héraðsins á stefnuskrá sinni. Klúbburinn hefur m.a. staðið fyrir ráðstefnum um orkumáli í Rangárþingi, ferðaþjónustu, landgræðslu og síðast en ekki síst um eldgosavá. Þessi áhersla er í samræmi við markmið Fjórprófs Rótarýhreyfingarinnar; „Er það satt og rétt er það drengilegt, eykur það velvild og vinarhug – er það öllum til góðs“.