- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir

Vegna gatnagerðar í Stóragerði verður akstur takmarkaður eins og kostur er næstu daga. Ekki verður um lokun að ræða, en íbúar og ökumenn eru vinsamlegast beðnir um að velja aðrar leiðir ef þeir hafa tök á því. Ef ekið er á viðkvæmu undirlaginu óskum við eftir að ekið sé hægt og varlega.
Áætlað er að malbika á miðvikudag og má þá búast við einhverjum töfum og takmörkunum á umferð um svæðið.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þökkum fyrir sýnda tillitssemi.