- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Í tilefni sumarsólstöðunnar bjóða listamennirnir Lemos og Lehmann nærsamfélaginu til samveru í Tumastaðaskógi um næstu helgi. Þar mun fara fram opnun á verkefninu Finndu þína eigin á. Verkið samanstendur af þremur tímabundnum innsetningum sem eru skapaðar sérstaklega fyrir skóginn og byggja á áralöngu sambandi listafólksins við þennan fallega stað.
Listafólkið, sem er búsett hér á Hvolsvelli, hefur áralanga reynslu og hefur haldið fjölda sýninga víða um heim. Á ferilskrá þeirra má finna sýningar í löndum á borð við Spán, Portúgal, Japan og Bandaríkin. Þau stýra einnig menningarsamtökunum BONFIRE.
Að opnun lokinni er fólki á öllum aldri boðið að taka þátt í notalegri samveru úti í náttúrunni. Þar verður gengið um skóginn, hlustað og umhverfið skoðað með forvitni að leiðarljósi. Þetta er fín tækifæri til að eiga góða morgunstund og tengjast landslaginu í rólegheitum.
Viðburðurinn nýtur stuðnings frá Menningarsjóði Rangárþings eystra og eru öll hjartanlega velkomin.
