Lífshlaup ÍSÍ er núna í fullum gangi. Þúsundir landsmanna taka þátt með því að skrá niður alla hreyfingu. Verkefnið, sem hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár, hvetur fólk á öllum aldri til að safna mínútum í hreyfingu, hvort sem er með göngu, hlaupum, hjólreiðum eða annarri líkamsrækt. Skipuleggjendur segja markmiðið vera að efla daglega hreyfingu og minna á mikilvægi hennar fyrir líkamlega og andlega vellíðan. Vinnustaðir og skólar keppa jafnframt sín á milli sem skapar jákvæða stemningu og eykur samheldni. Sérfræðingar benda á að jafnvel stutt hreyfing á dag geti haft veruleg áhrif á heilsu til lengri tíma.

Tæplega helmingur starfsmanna Rangárþings eystra hefur skráð sig til leiks og hafa verið áberandi á götum bæjarins, íþróttamiðstöðinni sem og annars staðar í sveitarfélaginu. Vikulega hafa verið dregnir út tveir þátttakendur og hafa þeir fengið gjafabréf sem hægt er að nota til kaups á íþróttavörum. Til þessa hafa tvö gjafabréf farið til starfsmanna Kirkjuhvols og önnur tvö til starfsfólks leikskólans Öldunar. Dregið verður aftur nk. föstudag og það er aldrei of seint að byrja.

Við erum heilsueflandi samfélag, hvetjum hvert annað til hreyfingar og nýtum okkur þá frábæru aðstöðu sem í boði er í sveitarfélaginu.