Leikskólinn Aldan auglýsir eftir starfsfólki í eftirtaldar stöður

Leikskólinn Aldan er 8 deilda leikskóli á Hvolsvelli og munu rúmlega 115 börn og 40 kennarar, leiðbeinendur og annað starfsfólk starfa þar á næsta skólaári.

 

Uppeldisstefna Öldunnar byggir á hugmyndafræði hugsmíðahyggju. Hugmyndafræðin felur í sér að börnin séu leitandi og gagnrýnin, tileinki sér þekkingu og skilning með ígrundun, lausnaleit, rökhugsun og að þau læri að nýta sér það í leik og starfi.

Að börnin geti tekið ígrundaðar ákvarðanir byggðar á þekkingu þeirra og gildismati.

Leikskólinn er að innleiða jákvæðan aga og flæði (flow) í leikskólastarfið. Við leitum að starfsfólki sem er tilbúið að efla og þróa starf leikskólans enn frekar.

100% stöður kennara

Starfssvið : Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla, hæfni og áhugi á að starfa með börnum.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum FL við samband íslenskra sveitafélaga.

 

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi, hreint sakarvottorð og hafa náð þrepi C1 í íslensku samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Ef ekki fást kennarar til starfa verður ráðið starfsfólk með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinendur og er þá greitt samkvæmt viðkomandi kjarasamningi.

 

 

Starfsmaður í ræstingar, fullt starf.

Starfssvið : Ræsting í Öldunni ásamt öðrum starfsmanni.

Við leitum að duglegum og metnaðarfullum starfsmanni sem leggur sig fram í starfi. Hefur auga fyrir smáatriðum og skilar af sér vönduðu verki. Við leggjum áherslu á gæði, snyrtimennsku og góð vinnubrögð.

Vinnutími : 7:00-15:00

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi (FOSS).

 

 

 

Aðstoð í eldhúsi

Hæfniskröfur :

  • Snyrtimennska og rík þjónustulund
  • Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum

Helstu verkefni:

Er uppvask, framreiðsla, frágangur, þrif og önnur tilfallandi verkefni.

Vinnutími er 7:45-15:45

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi(FOSS).

 

Umsóknarfrestur er til og með 21. júlí 2026. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsóknum skal skila ásamt ferilskrá og meðmælum á heimasíðu leikskólans aldan.leikskolinn.is undir flipanum - Um leikskólann – Starfsumsóknir.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólbjört Sigríður Gestsdóttir skólastjóri í síma 867-8315 eða með tölvupósti á leikskoli@hvolsvollur.is.