- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Leikskólinn Aldan er 8 deilda leikskóli á Hvolsvelli. Þar starfa um 115 börn og 40 starfsmenn. Gildi Öldunnar eru samskipti virðing og samvinna.
Uppeldisstefna Öldunnar byggir á hugmyndafræði hugsmíðahyggju. Hugmyndafræðin felur í sér að börnin séu leitandi og gagnrýnin, tileinki sér þekkingu og skilning með ígrundun, lausnaleit, rökhugsun og að þau læri að nýta sér það í leik og starfi. Einnig er samþætt inní starfið agastefnan jákvæður agi og unnið er með flæði með það að markmiði að börnin geti tekið ígrundaðar ákvarðanir byggðar á þekkingu þeirra og gildismati. Einnig að börn geti unnið eftir sínu áhugasviði í daglegu starfi leikskólans.
100% staða deildarstjóra frá 12. ágúst 2026
Starfsvið : Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt lögum um leikskóla, aðalnámskrá leikskóla, stefnu og skipulagi leikskólans.
Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og starfsáætlun leikskólans á deildinni.
Annast daglega verkstjórn á deild, skipulagningu, framkvæmd og mati deildarstarfs.
Ber ábyrgð á upplýsingagjöf og samvinnu við foreldra.
Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna á deildinni.
Er í stjórnendateymi leikskólans.
Menntunar og hæfniskröfur:
100% staða Sérkennslustjóra frá 12. ágúst 2026 til eins árs.
Starfsvið : Yfirumsjón með skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í leikskólanum í samráði við leikskólastjóra.
Menntunar og hæfniskröfur :
100% stöður kennara frá 12. ágúst 2026
Starfssvið : Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans undir stjórn deildarstjóra.
Menntunar og hæfniskröfur:
Gerðar eru kröfur um góða hæfni í mannlegum samskiptum og stundvísi.
Fáist ekki kennari með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2026. Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Umsóknum skal skila ásamt ferilskrá og meðmælum á heimasíðu leikskólans aldan.leikskolinn.is undir flipanum - Upplýsingar – Starfsumsóknir.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sólbjört Sigríður Gestsdóttir skólastjóri í síma 848 - 4270 eða með tölvupósti á leikskoli@hvolsvollur.is.