Það var gleðilegur dagur fyrir sveitarfélagið okkar miðvikudaginn 12. nóvember þegar Leikskólinn Aldan á Hvolsvelli hlaut Íslensku hljóðvistarverðlaunin 2025. Dómnefnd veitti leikskólanum viðurkenninguna fyrir framúrskarandi hljóðvist, en verðlaunin eru samstarfsverkefni Verkfræðingafélags Íslands (VFÍ) og ÍSHLJÓÐS.

Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru veitt og er mikill heiður fyrir sveitarfélagið að fá slíka viðurkenningu fyrir nýbygginguna okkar. Þau Sólbjört S. Gestsdóttir leikskólastjóri og Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri veittu verðlaununum viðtöku fyrir hönd Rangárþings eystra.

Góð hljóðvist verður ekki til af sjálfu sér og liggur mikil vinna fagfólks að baki hönnun skólans. Kristín Ómarsdóttir, verkfræðingur og hljóðráðgjafi, og EFLA sáu um hljóðhönnun byggingarinnar. Sverrir Þór Viðarsson var innanhússarkitekt verkefnisins og húsið var hannað af P Ark teiknistofu, þeim Páli V. Bjarnasyni og Ólöfu Pálsdóttur arkitektum.

Við afhendinguna flutti Helgi Gunnarsson, formaður VFÍ, ávarp þar sem hann kom inn á mikilvægi þess að huga vel að hljóðumhverfinu. Hann lagði áherslu á að góð hljóðvist væri ekki munaður heldur grunnþáttur í heilbrigðu og manneskjulegu umhverfi. Með vandaðri hljóðhönnun skapast ró og öryggi sem er nauðsynlegt bæði fyrir börnin okkar og starfsfólkið.

Við óskum starfsfólki, nemendum og íbúum öllum til hamingju með þessa flottu viðurkenningu.

Á myndinni hér að ofan má sjá frá vinstri: Helgi Gunnarsson formaður VFÍ, Páll V. Bjarnason arkitekt, Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri Rangárþings eystra, Ólöf Pálsdóttir arkitekt, Kristín Ómarsdóttir formaður ÍSHLJÓÐS og Sólbjört S. Gestsdóttir leikskólastjóri.