Leikskólinn Aldan er 8 deilda leikskóli á Hvolsvelli. Húsnæði Öldunnar var tekið í notkun í ágúst 2023. Í Öldunni stunda um 110 börn nám og leik og í leikskólanum starfa 35 kennarar og leiðbeinendur.

Aldan starfar í anda Hugsmíðahyggju þar sem hvert barn fær notið sín á eigin forsendum og getur byggt ofan á sína reynslu. Innleiðing er á jákvæðum aga (possitive dissipline) og flæði (Flow) í daglegu starfi leikskólans.

100% staða aðstoðarleikskólastjóra frá 1. ágúst 2025 – 1. ágúst 2026

 

Starfssvið:

  • Að vinna náið með leikskólastjóra að mótun faglegs starfs innan leikskólans.
  • Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
  • Er tengiliður farsældar og situr í teymi með deildarstjóra stoðþjónustu.
  • Tryggir að unnið sé eftir lögum, Aðalnámskrá leikskóla, menntastefnu Rangárþings eystra og skólanámskrá leikskólans.
  • Starfar samkvæmt starfslýsingu og í samráði við leikskólastjóra.
  • Sinnir öðrum verkefnum er varða stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum.

 

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókninni)
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg.
  • Reynsla af stjórnun og góð leiðtogahæfni.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði, sveigjanleika, sjálfstæði og metnað fyrir starfi sínu.
  • þarf að vera tilbúinn til að vinna að uppeldi og menntun barna í samræmi við námskrá og í nánu samstarfi við aðra kennara leikskólans

 

 

Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl n.k. Við hvetjum öll kyn að sækja um.

Umsóknum skal skilað inn ásamt ferilskrá og meðmælum á heimasíðu leikskólans : aldan.leikskolinn.is undir flipanum – Upplýsingar – starfsumsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitafélaga við FSL.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólbjört Sigríður Gestsdóttir skólastjóri í síma 488 - 4270 eða með tölvupósti á leikskoli@hvolsvollur.is.