Hið árlega og geysivinsæla leikjanámskeið Rangárþings eystra hefst fimmtudaginn 4. júní. Námskeiðið er fyrir börn fædd 2016-219. Öll námskeiðin hefjast kl. 09:00 og eru búin kl 12:00. Hægt er að mæta í ,,gæslu“ kl. 08:00.

Mæting er í íþróttahúsið á Hvolsvelli á hverjum morgni. Námskeiðið fer i fram inni í íþróttasal en einnig utan dyra og því þurfa börnin að koma klædd eftir veðri, með innanhús fatnað og sundföt. Gott nesti er einnig nauðsynlegt.

 

  • Fyrir börn fædd 2016-2019
  • Hefst fimmtudaginn 4. júní kl. 09:00
  • Íþróttahúsinu Hvolsvelli

 

Námskeið 1 3. – 12. júní. Verð 7.000 krónur

Námskeið 2 15. – 19. júní, (þó ekki þann 17. júní) Verð 4.000 krónur.

Námskeiið 3 22. – 26. júní. Verð 5.000 krónur

Námekið 4 29. júní – 4. júlí. Verð 5.000 krónur

 

Umsjón hafa þau Óðinn Magnússon, Ólafía Ragnheiður Þórðardóttir, Þórður Kalman en þau hafa öll reynslu af því að vinna með börnum og hafa starfað áður á leikjanámskeiði Rangárþings eystra. Þeim til halds og trausts verða ungmenni úr vinnuskólanum.

 

Skráning fer fram í gegnum abler. www.abler.is

 

Nánari upplýsingar gefur Ólafur Örn Oddsson, olafurorn@hvolsvollur.is