Hjúkrunar- og dvalarheimilið Kirkjuhvoll leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að taka að sér starf yfirmanns í eldhúsi. Um er að ræða 100% starf með ábyrgð á daglegum rekstri eldhúss, skipulagningu vinnu og leiðsögn starfsfólks.

 

Helstu verkefni:

* Umsjón með daglegum rekstri eldhúss

* Skipulagning og stjórnun vinnu starfsfólks

* Tryggja gæði, hreinlæti og öryggi í samræmi við reglur

* Matseðlagerð og eftirfylgni með innkaupum eftir því sem við á

* Þátttaka í matargerð og þjónustu

 

Hæfniskröfur:

*Iðnmenntun sem nýtist í starfinu, s.s. matreiðslupróf, matsveinn, matartækni eða starfsnám tengt matargerð, er kostur

*Þekking/reynsla af rekstri mötuneytis ásamt mannaforráðum er kostur

*Þekking/reynsla af næringarfræði, sérþörfum, gæðum og fjölbreytileika matar er kostur

*Góð almenn tölvukunnátta

*Góð kunnátta í íslensku og ensku

*Góð hæfni í mannlegum samskiptum

*Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni

 

Við bjóðum:

*Fjölbreytt og krefjandi starf

*Gott starfsumhverfi og öflugt teymi

*Tækifæri til að hafa áhrif á starfsemina

 

Starfið er laust frá 1. ágúst 2026.

 

Nánari upplýsingar veitir Sjöfn Dagmar Guðjónsdóttir. Umsóknir sendist á sjofn@hvolsvollur.is fyrir 1. júlí 2026.