Laust starf – Leiðbeinandi hjá VISS á Hvolsvelli (50%)
VISS vinnu- og hæfingarstöð óskar eftir að ráða metnaðarfullan og jákvæðan leiðbeinanda í 50% starf með starfsstöð á Hvolsvelli. Um er að ræða starf frá 1. janúar nk. Vinnutími er virka daga frá kl. 09:00 til 13:00.
VISS er vinnu- og hæfingarúrræði fyrir fólk með skerta starfsgetu þar sem unnið er samkvæmt hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og Sjálfstæðs lífs. Lögð er áhersla á virðingu, þátttöku, sjálfstæði og einstaklingsmiðaðan stuðning.
Helstu verkefni
- Veita persónulegan, sveigjanlegan og einstaklingsmiðaðan stuðning.
- Stuðla að auknu sjálfstæði og þátttöku starfsmanna í vinnu og félagslífi.
- Aðstoða við athafnir daglegs lífs eftir þörfum.
- Hafa umsjón með verkefnum og daglegu starfi innan VISS.
- Fylgja eftir einstaklingsáætlunum, markmiðum og vinnuferlum.
- Skipuleggja eigin störf í samstarfi við samstarfsfólk og yfirmenn.
- Taka þátt í að skapa jákvætt, öruggt og uppbyggilegt starfsumhverfi.
Hæfniskröfur
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur.
- Menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
- Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi fólks.
- Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði í starfi.
- Skipulagshæfileikar og geta til að forgangsraða verkefnum.
- Jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
- Hreint sakavottorð
- Góða íslensku færni
- Almenn tölvukunnátta.
Við bjóðum upp á
- Gefandi og fjölbreytt starf þar sem einstaklingurinn skiptir máli.
- Tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á líf og velferð fólks.
- Gott starfsumhverfi og öflugt samstarf.
- Vinnustað sem leggur áherslu á virðingu, samvinnu og vellíðan starfsfólks.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er 15. desember 2026.
Nánari upplýsingar veitir Elías Árnason, deildarstjóri VISS á Hvolsvelli, á netfanginu viss@hvolsvollur.is.