Landstólpinn, samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar, er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Um er að ræða hvatningarverðlaun til einstaklinga, fyrirtækja, hópa eða verkefna sem vakið hafa athygli á byggðamálum, styrkt samfélög í landsbyggðunum eða stuðlað að framgangi málefna landsbyggðanna, ýmist í heild eða innan tiltekins byggðarlags, s.s. innan nýsköpunar, byggðaþróunar, atvinnuþróunar, sjálfbærni eða menningar.
Hér með er lýst eftir tilnefningum um handhafa Landstólpans 2025. Dómnefnd velur úr þeim tillögum sem berast.
Hafa má í huga hvort viðkomandi einstaklingur, hópur, fyrirtæki eða verkefni hafi:
Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar. Nauðsynlegt er að rökstuðningur fylgi tilnefningunni.
Viðurkenningunni fylgir listmunur hannaður af íslenskum listamanni. Verðlaunafé að upphæð kr. 1.000.000.- fylgir einnig viðurkenningunni.
Óskað er eftir því að tillögur verði sendar á netfangið landstolpinn@byggdastofnun.is.
Nánari upplýsingar veita Helga Harðardóttir eða Andri Þór Árnason, s. 455-5400.
Frestur til að skila inn tilnefningum rennur út föstudaginn 28. febrúar 2025.