Tónlistarskóli Rangæinga heldur upp á 70 ára afmæli sitt með tónleikum í íþróttahúsinu í Þykkvabæ föstudaginn 13. nóvember klukkan 17:30. Allir nemendur skólans koma fram á tónleikunum í samspilsatriðum. Þema dagskrárinnar er kvikmyndatónlist.

Skólinn átti 70 ára afmæli þann 19. október síðastliðinn, en þann dag árið 1956 hófst kennsla við hann í fyrsta sinn. Stofnun skólans má rekja til áramótanna 1955 til 1956 þegar ákveðið var að koma á fót tónlistarskóla í Rangárvallasýslu fyrir forgöngu Björns Fr. Björnssonar, fyrrverandi sýslumanns. Fyrsta veturinn voru nemendur 25 talsins. Þá var kennt á orgel, píanó og í tónmennt, en fljótlega varð hljóðfæravalið fjölbreyttara.

Reksturinn tók breytingum árið 1961 þegar Trúmann Christiansen, skólastjóri Hvolsskóla, tók við stjórn tónlistarskólans. Hann rak skólann til ársins 1976, oftast með einum kennara, og fór kennslan fram í grunnskólanum. Árið 1976 varð skólinn sameign allra hreppanna í Rangárvallasýslu. Sigríður Sigurðardóttir tók þá við sem skólastjóri og voru fimm kennarar ráðnir að skólanum. Næstu ellefu árin var unnið mikið brautryðjendastarf við skólann, en Sigurður Haraldsson í Kirkjubæ gegndi formennsku í skólanefnd allan þann tíma.

Síðan þá hafa Helgi Hermannsson, László Czenek, Sigríður Aðalsteinsdóttir og Sigurgeir Guðmundsson meðal annarra stýrt skólanum. Í dag er Sandra Rún Jónsdóttir skólastjóri Tónlistarskóla Rangæinga. Skólinn er rekinn sem byggðasamlag Ásahrepps, Rangárþings ytra og Rangárþings eystra. Hann er með aðsetur að Vallarbraut 16 á Hvolsvelli ásamt starfsstöð á Hellu.

Íbúar og aðrir gestir eru hvattir til að mæta í Þykkvabæinn og fagna þessum tímamótum með nemendum og starfsfólki skólans.

Nánari upplýsingar um tónleikana má finna á facebook viðburði skólans

https://fb.me/e/kR4eXIb8w