Sveitarfélagið Rangárþing eystra iðar af lífi þessa dagana en von er á fjölmennu liði leikara og starfsmanna á vegum kvikmyndafyrirtækisins TrueNorth. Alls munu um 400 manns, sem starfa við framleiðslu á stórmynd sem til stendur að frumsýna næsta sumar vera á svæðinu næstu daga, en töluverð leynd liggur yfir því hvaða mynd er verið að taka upp. Fylgir þó sögunni að þarna sé á ferðinni kvikmynd í leikstjórn eins vinsælasta leikstjóra um þessar mundir.

TrueNorth hefur tekið á leigu, allt húsnæði Hvolsskóla frá og með föstudeginum 13. til laugardagsins 21. júní. Hópurinn mun gista í og við Hvolsskóla sem og nýta hann sem bækistöð sína. Þessi leiga kemur til með mjög skömmum fyrirvara þar sem tjaldbúðir TrueNorth sem búið var setja upp í Vík, fuku og eyðilögðust í roki í vikunni. Því þurfti að hafa hraðar hendur og finna aðra gistingu fyrir þennan stóra hóp.

Kvikmyndatökur munu að mestu fara fram á næturnar í Rangárþingi eystra og Mýrdalshreppi. Vegna þessa óvenjulega vinnutíma mun hópurinn sofa í Hvolsskóla yfir daginn og biðjum við íbúa að sýna því skilning.

Við bjóðum þennan glæsilega hóp velkominn í Rangárþing eystra og hlökkum til að fylgjast með þessu spennandi verkefni.