Karlakór Rangæinga efnir til kótilettukvölds í Hvolnum föstudaginn 6. nóvember næstkomandi. Boðið verður upp á góða kvöldstund með mat og tónlist þar sem allir eru velkomnir.

Á matseðlinum eru lambakótilettur frá Sláturfélagi Suðurlands og eftirréttur að hætti kokksins. Félagar í Karlakór Rangæinga stíga á svið um kvöldið og syngja vel valin lög fyrir gesti. Eftir söng kórsins tekur við gítarleikur og almennur söngur þar sem gestir geta tekið undir.

Húsið verður opnað klukkan 19:00 og borðhald hefst klukkan 20:00. Miðaverð á viðburðinn er 7.500 krónur. Kórinn hvetur öll sem hafa áhuga til að mæta með góða matarlyst og gleðina í fyrirrúmi.