Kjörfundur í Rangarþingi eystra, vegna sveitarstjórnarkosninga

Laugardaginn 16. maí 2026, verður sem hér segir:

Í Félagsheimilinu Hvoli „litla sal“ kjósa íbúar vestan Markarfljóts

og Félagsheimilinu Heimalandi kjósa íbúar austan Markarfljóts

 

Kjörstaðir verða opnir frá klukkan:

9:00 – 20:00 í Félagsheimilinu Hvoli

9:00 – 18:00 í Félagsheimilinu Heimalandi

Kjósendur eru beðnir að hafa með sér persónuskilríki á kjörstað

Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins Austurvegi 4,

Hvolsvelli á skrifstofutíma fram að kjördegi

 

Skrifstofa sveitarfélagsins er opin

Mánudaga – fimmtudaga 9-16

Föstudaga 9-13

 

Bent er á upplýsingavef https://island.is/v/sveitarstjornarkosningar-2026

en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna.

Þar geta kjósendur einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni: https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/

 

Yfirkjörstjórn

Rangárþings eystra