Jónína Sigurðardóttir, yfirmaður í eldhúsi hjúkrunarheimilisins Kirkjuhvols á Hvolsvelli, hlaut á dögunum viðurkenningu sem fyrirmynd í námi fullorðinna. Viðurkenningin var veitt á ársfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Jónína hefur starfað hjá Mötuneyti Rangárþings eystra frá árinu 2020. Hún hóf störf sem almennur starfsmaður, varð síðar aðstoðarmaður yfirmanns og stýrir nú eldhúsinu á Kirkjuhvoli.

Námsferill Jónínu hófst árið 2019 þegar hún starfaði í ferðaþjónustu og skráði sig á námskeið í meðferð matvæla hjá Fræðsluneti Suðurlands. Að því loknu hvatti Sólveig, þáverandi námsráðgjafi hjá Fræðslunetinu, hana til að fara í raunfærnimat. Jónína var þá 43 ára og hafði litla trú á að frekara nám ætti við hana, en lét þó slag standa. Með raunfærnimatinu fékk hún stóran hluta námsins metinn, sem varð henni mikilvæg hvatning til að halda áfram.

Í kjölfarið hóf Jónína fjarnám við Menntaskólann í Kópavogi samhliða fullu starfi. Vorið 2023 útskrifaðist hún sem matsveinn og um jólin sama ár lauk hún námi sem matartæknir.

Jónína segir að gott skipulag og stuðningur fólksins í kringum hana hafi skipt sköpum í krefjandi námi. Í ræðu sinni við afhendingu viðurkenningarinnar nefndi hún sérstaklega stuðning Sólveigar og Steinunnar hjá Fræðsluneti Suðurlands. Steinunn treysti henni fyrir námsverinu á Hvolsvelli þar sem Jónína hafði góða aðstöðu og athvarf til að læra. Þá sagði Jónína um þá hvatningu sem hún fékk í upphafi frá Sólveigu:

„Án Sólveigar hefði mér aldrei dottið í hug að ég ætti nokkurt erindi út í þetta ævintýri. En hún sá eitthvað og trúði á að ég gæti þetta og fyrir það verð ég henni ævinlega þakklát.“

Þegar Jónína lítur til baka á vegferðina dregur hún hana saman í fáum orðum: „Já, það er svona eitt lítið námskeið sem ég skráði mig á breytti öllu.“

Rangárþing eystra óskar Jónínu innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu og góðan árangur í námi og starfi.