Jólaljósin verða kveikt kl 16:30 á jólatrénu á miðbæjartúninu fimmtudaginn 19.nov.


Barnakór Hvolsskóla mun syngja jólalög, Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir, oddviti mun ávarpa gesti, Landsbankinn mun gefa börnunum nammipoka og heyrst hefur að jólasveinarnir ætli að skreppa til byggða til að heilsa upp á gesti. Þeir eiga líka örugglega eftir að dansa með börnum og fullorðnum í kringum jólatréð.

Sveitabúðin Una ætlar að bjóða upp á heitt súkkulaði með rjóma, piparkökur og nýbakaðar kleinur.