- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Keppendur Íþróttafélagsins Dímonar á Meistaramóti Íslands í Frjálsum Íþróttum 28 feb til 1 mars 2026
Ívar Ylur Birkisson Íslandsmeistari á nýju HSK meti í 60 m grindarhlaupi á Meistaramóti Íslands sem fór fram um síðustu helgi í Laugardalshöll. Hann hljóp á 8,45 sek sem er HSK met í flokki 18-19 ára en hann nálgast Íslandsmetið í sínum flokki og HSK met karla.
Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir stóð sig líka vel á Meistaramótinu en hún varð í 6 sæti í Langstökki með stökk upp á 5,06 m en gífurlega góður árangur að ná inn í úrslit á Meistaramóti fullorðinna.


Ívar Ylur á MÍ fullorðinna verðlaunaafhending fyrir 60 m grind
Magnea (mí 15-22 ára langst. stúlkur 15 ára) fyrr í vetur