- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur sett af stað íbúakönnun til að kortleggja þörf á hjólastígum í sveitarfélaginu. Þetta skref er tekið í kjölfar áskorunar frá ungmennaráði.
Á nýlegum fundi skoraði ungmennaráð á nýja sveitarstjórn að útbúa áætlun um gerð hjólastíga og hefjast handa sem fyrst. Í áskoruninni kom fram að hjólreiðar séu vaxandi samgöngumáti og að mörg börn, ungmenni og aðrir íbúar noti reiðhjól eða rafmagnshjól til að komast leiða sinna. Jafnframt benti ráðið á að stígar í sveitarfélaginu séu þröngir og geti verið mjög hættulegir fyrir hjólandi vegfarendur. Hjólastígar séu því mikilvægt öryggismál.
Byggðarráð þakkaði ungmennaráði fyrir þessa góðu ábendingu og vísaði málinu til afgreiðslu hjá skipulags- og umhverfisnefnd. Nefndin brást við og fól skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna þarfagreiningu og leggja könnunina fyrir íbúa.
Könnunin er nú opin og er markmið hennar að fá betri yfirsýn yfir hvar helst vantar hjólastíga, hvaða leiðir eru mest notaðar og hvar íbúum þykja aðstæður óöruggar fyrir hjólandi fólk. Við hvetjum alla til að taka þátt og deila sínum ábendingum, enda skiptir þátttaka ykkar miklu máli til að við getum bætt umferðaröryggi í sveitarfélaginu.
Íbúakönnun um hjólastíga í Rangárþingi eystra
Að lokum er skemmtilegt að segja frá því að ungmennaráð er að stofna sinn eigin TikTok aðgang. Þar ætlar hópurinn að vera duglegur að auglýsa viðburði og kynna sveitarfélagið okkar. Við mælum eindregið með því að fylgjast með þeim þar!