- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Markaðs- og menningarnefnd hefur einhuga ákveðið að útnefna listakonuna Hrafnhildi Ingu Sigurðardóttur á Sámstaðabakka sem Sveitalistamann Rangárþings eystra fyrir árið 2026. Nefndin þakkar íbúum kærlega fyrir allar þær tilnefningar sem bárust vegna valsins.
Hrafnhildur Inga er Fljótshlíðingur, fædd og uppalin á Vestri-Sámstöðum. Hún hefur gert náttúru og landslagi heimahaganna góð skil í verkum sínum, þar sem íslenskt landslag, birta og veður skipa jafnan stóran sess.
Með þessari útnefningu vill sveitarfélagið þakka Hrafnhildi Ingu fyrir hennar mikilvæga framlag til lista og menningar í Rangárþingi eystra. Við óskum henni innilega til hamingju með útnefninguna.
https://fineartamerica.com/profiles/hrafnhildur-inga-sigurdardottir