Um helgina fór Kjötsúpuhátíðin fram í blíðskapar veðri og met þáttöku. Í tengslum við hana ræddi sveitarstjóri okkar við Bylgjuna um það helsta sem er á döfinni hjá okkur. Viðtalið má nálgast í heild sinni hér á Vísi hér að neðan og þar kemur vel fram að við horfum björtum augum fram á við. Jákvæðar fréttir úr samfélaginu okkar eru mikilvægar og gott að halda þeim á lofti.

Hér í Rangárþingi eystra er unnið markvisst að því að skapa góða umgjörð fyrir fjölskyldur og atvinnulíf. Við getum brátt státað af nýjum og góðum leikskóla sem er mikilvæg viðbót við þjónustu okkar við barnafjölskyldur. Fyrir þá sem hyggjast setjast hér að eða stækka við sig er vert að benda á að boðið er upp á ódýrar lóðir í sveitarfélaginu og gott aðgengi er að atvinnuhúsnæði. Þessi uppbygging nýtur góðs af því að sveitarfélagið stendur fjárhagslega vel og reksturinn er traustur.

Góð búseta snýst þó um fleira en trausta innviði. Við erum stolt af því að hér er haldið úti fjölbreyttu og góðu íþróttastarfi sem þjónar íbúum á öllum aldri. Þá er félagslífið í sveitarfélaginu öflugt þar sem kórar og fjöldi annarra félagasamtaka halda uppi gróskumiklu mannlífi yfir allan veturinn.

Við viljum nýta þennan jákvæða anda og benda áhugasömum á að kynna sér kostina við að búa og starfa í Rangárþingi eystra á vefsíðunni okkar, Https://velkominheim.hvolsvollur.is. Tökum vel á móti nýju fólki og hjálpumst að við að deila þessum upplýsingum áfram.