Eftir tæpa viku fer hjólreiðakeppnin The Rift fram hér á Hvolsvelli. Við eigum von á um þúsund keppendum auk fylgdarliðs frá mörgum löndum sem munu setja skemmtilegan svip á bæinn okkar. Það er mikilvægt og jákvætt að fá viðburð sem þennan í sveitarfélagið og mikil tilhlökkun í hópnum.

Vegna keppninnar þarf að loka nokkrum götum og vegum tímabundið til að tryggja öryggi allra sem taka þátt eða fylgjast með. Við biðjum íbúa að sýna þessu þolinmæði og gera ráð fyrir lokunum við skipulagningu á ferðum sínum þessa helgina. Nánari upplýsingar og kort af því hvaða götur verða lokaðar má sjá hér.

Viðburðarsvæðið verður opið öllum og við hvetjum íbúa til að mæta og taka þátt. Á föstudeginum verður sýningarsvæðið opið þar sem styrktaraðilar verða með tjöld og kynningar. Á laugardeginum er tilvalið að mæta við ræsingu klukkan 07:00, hvetja keppendur áfram og taka svo vel á móti þeim við marklínuna þegar þeir skila sér í bæinn aftur. Klukkan 18:00 á laugardag fer fram verðlaunaafhending þar sem gestum verður boðið upp á pylsur og drykki. Við vonumst til að sjá sem flesta mæta og hjálpa okkur að taka vel á móti gestunum okkar.