Við minnum á að huga að gróðri við lóðamörk fyrir komandi vetur. Samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/2012, gr. 7.2.2 ber að:

• Gróður haldist innan lóðarmarka og skagi ekki út yfir gangstéttar, akbrautir eða opin svæði.

• Tryggja lágmarkshæð undir greinum og gróðri sem teygir sig yfir göngu- eða akleiðir: 2,8 m yfir gangstétt og 4,2 m yfir akbraut.

 

Á þessum árstíma er heppilegt að undirbúa klippingar (panta verktaka, skoða limgerði og tré), ef skoðun leiðar af sér að gróður er út fyrir lóðamörk sem getur valdið ama er nauðsynlegt að fjarlægja augljósa öryggishættu strax.

Þessi atriði þurfa að vera í lagi:

  • Umferðarmerki verða að vera sýnileg.
  • Gróður má ekki byrgja götulýsingu.
  • Gangandi og hjólandi þurfa að eiga greiða leið um gangstíga.
  • Þar sem vélsópar og snjóruðningstæki fara um má lágmarkshæð gróðurs yfir stígum ekki vera lægri en 2,8 metrar.
  • Þar sem sorphirðubílar þurfa að komast eftir stétt eða stíg má gróður ekki vera neðar en 4,2 metrar, sambærilegt við akbraut.

 

Vakin er athygli á að umfangsmeiri klippingar fara almennt best fram í febrúar–mars.