- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Landsmót hestamanna fór nýverið fram og áttu hestamenn og ræktendur úr Rangárþingi eystra góðu gengi að fagna á mótinu. Nokkur hross og ræktendur úr héraðinu náðu mjög góðum árangri í mismunandi flokkum.
Hesturinn Sindri frá Hjarðartúni sigraði í A-flokki gæðinga undir stjórn knapans Hans Þórs Hilmarssonar með einkunnina 9,13. Skeiðsprettirnir hjá Sindra voru sérstaklega sterkir og átti sá hluti sýningarinnar stóran þátt í sigrinum.

Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór. Mynd Freydís Bergsdóttir
Í B-flokki gæðinga stóð Kór frá Skálakoti uppi sem sigurvegari. Kór er ræktaður af Guðmundi Jóni Viðarssyni, Mumma í Skálakoti, en ræktunarstarfið þar hefur verið mjög farsælt. Mummi ræktaði einnig stóðhestinn Skýr, sem átti heil 46 afkvæmi á mótinu. Mummi þakkar þennan góða árangur að stórum hluta hryssunni Vök frá Skálakoti, sem er móðir Skýs og amma Kórs.

Ljósmynd/Freydís Bergsdóttir
Í kynbótadómi stóðhesta fékk Pensill frá Hvolsvelli fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og hafnaði í fjórða sæti með 129 stig. Hann var einnig nefndur í umræðu um Orrabikarinn, sem veittur er þeim stóðhesti sem stendur efstur með fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi.

Tíu hestar hlutu fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á mótinu og stóð Hannibal frá Þúfum þar efstur stóðhesta. Við hátíðlega verðlaunaafhendingu leiddu ræktendur og eigendur Hannibals, þau Mette Mannseth og Gísli Gíslason, afkvæmahóp hans inn á völlinn og veittu viðtöku Orrabikarnum. Bikarinn er gefinn til minningar um hinn landsþekkta stóðhest Orra frá Þúfu í Landeyjum, sem markaði djúp spor í íslenskri hrossarækt og átti eftir að hafa víðtæk áhrif á ræktun íslenska hestsins bæði hér á landi og erlendis. Það var Anna Berglind Indriðadóttir frá Þúfu í Landeyjum sem afhenti bikarinn fyrir hönd fjölskyldunnar.

Gísli Gíslason og Mette Mannseth taka við Orrabikarnum frá Önnu Berglindi Indriðadóttur Mynd: Freydís Bergsdóttir
Þessi góði árangur sýnir svo ekki verður um villst að bæði keppni og ræktun íslenska hestsins er í miklum blóma í Rangárþingi eystra. Sveitarfélagið óskar eigendum, ræktendum og knöpum innilega til hamingju með árangurinn.