Píluíþróttin nýtur vinsælda í sveitarfélaginu og heimamenn eru duglegir að láta að sér kveða. Síðastliðinn sunnudag tóku þeir Sigurður Orri og Sæþór þátt í Floridana deildinni í pílukasti. Þetta var þeirra fyrsta mót á þessari mótaröð og náðu þeir mjög góðum árangri. Þeir voru settir saman í deild sem kallast Áldeildin, þar sem Sigurður Orri stóð uppi sem sigurvegari með 51,98 í meðaltal. Sæþór hafnaði í öðru sæti með 43,95 í meðaltal. Við óskum þeim til hamingju með þessa góðu byrjun á mótinu.

Fyrir þau sem hafa áhuga á að spreyta sig sjálf er ánægjulegt að segja frá því að píludeildin mun halda mótaröð nú í haust. Öll eru velkomin að mæta og taka þátt, hvort sem um er að ræða vana spilara eða byrjendur. Þetta er gott tækifæri til að hittast og eiga skemmtilega stund saman.

Nánari upplýsingar um mótaröðina og skráningu má nálgast inni í Facebook-hópunum Skyttur-Píla og Viðburðir á Hvolsvelli.