Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri Gigtarfélagsins, og tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson, betur þekktur sem Stebbi Jak, voru gestir á Bylgjunni í morgun þar sem þeir ræddu sameiginlegt ferðalag sitt á næstu dögum. Á morgun, fimmtudag, munu þeir koma hér við á Hvolsvelli og blanda saman fræðslu og skemmtun.

Þeir félagar byrja daginn á heimsókn í Hvolsskóla. Þar mun Stefán Magnússon vera með fyrirlestur fyrir starfsfólk á vegum Gigtarfélagsins á meðan Stebbi Jak tekur lagið fyrir nemendur og kennara skólans.

Um kvöldið færist dagskráin yfir á Midgard. Frá klukkan 18:30 verður Stebbi Magg mættur þangað og er hann mikið til í gott spjall við íbúa og aðra gesti. Þetta er tilvalið tækifæri til að fræðast um starfsemi Gigtarfélagsins milliliðalaust. Klukkan 20:30 hefjast síðan tónleikar hjá Stebba Jak þar sem allir ættu að geta notið góðrar tónlistar.

Eftir heimsóknina hingað á Hvolsvöll heldur ferðalag þeirra félaga áfram. Á föstudaginn verður Gigtarfélagið kynnt í Blómaborg í Hveragerði og um kvöldið heldur Stebbi Jak þar tónleika. Loks munu þeir kynna málefni félagsins í Grafarvogskirkju á laugardaginn.

Við bjóðum þá félaga velkomna í sveitarfélagið og hvetjum íbúa til að kíkja við á Midgard á morgun, eiga upplýsandi spjall og njóta tónleikanna.