- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Þjóðhátíðardagurinn var haldinn hátíðlegur víða í sveitarfélaginu á dögunum. Boðið var upp á dagskrá á Hvolsvelli, í Fljótshlíð, undir Eyjafjöllum og í Landeyjum þar sem íbúar og gestir fjölmenntu og áttu saman góðan dag.
Á Hvolsvelli sá meistaraflokkur kvenna í knattspyrnufélaginu KFR um skipulagningu dagsins. Dagurinn hófst á morgunverði í umsjón tilvonandi 10. bekkinga Hvolsskóla og samhliða gátu börn fengið andlitsmálningu og hárskraut hjá leikmönnum KFR. Björgunarsveitin Dagrenning tók á móti gestum með opnu húsi þar sem hægt var að spreyta sig í klifurveggnum.
Fjallkona á Hvolsvelli í ár var Ólafía Ragnheiður Þórðardóttir, en hún var jafnframt dúx Fjölbrautaskóla Suðurlands á vorönn. Að loknu ávarpi hennar og skrúðgöngu var farið í leiki og þrautir við slökkviliðsbíl á miðbæjartúninu. Þá lék Eyrún Aníta Gylfadóttir á harmoniku fyrir gesti og gangandi í Sveitabúðinni Unu, auk þess sem blaðrari mótaði blöðrudýr fyrir yngstu kynslóðina. Deginum lauk síðan með bíósýningum í Hvolnum.
Í Goðalandi í Fljótshlíð stóð kvenfélagið Hallgerður fyrir dagskrá. Þar fór fram hefðbundin hátíðarhöld með ræðuhöldum og tónlistaratriðum. Lovísa Rós Hlynsdóttir kom fram sem fjallkona. Afreksbikar Búnaðarfélagsins var afhentur við þetta tækifæri og gæddu gestir sér að lokum á kökuhlaðborði kvenfélagsins.
Vel var mætt á Heimaland undir Eyjafjöllum þar sem Ungmennafélagið Trausti og Kvenfélagið Eygló sáu um skipulagið. Þar kom Védís Ösp Einarsdóttir fram sem fjallkona og flutti hún ljóðið „Undir Eyjafjöllum“ eftir Halldór Jón Guðmundsson. Védís Ösp var einnig heiðruð sérstaklega með afreksbikar fyrir árangur sinn, en hún er unglingalandsliðskona í knattspyrnu og er á leið á Evrópumótið með U19 ára landsliðinu. Leikið var og sungið, farið í útileiki og boðið upp á kaffiveitingar.
Í Landeyjum hófst dagskráin við Njálsbúð á hinu árlega víðavangshlaupi. Þegar hlaupinu og tilheyrandi leikjum lauk bauð kvenfélagið upp á kaffihlaðborð Bergþórukvenna sem margir gerðu góð skil.
Sveitarfélagið vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra félagasamtaka og sjálfboðaliða sem lögðu fram vinnu sína við að gera daginn ánægjulegan fyrir samfélagið okkar.
Hér í myndasafni má svo nálgast nokkrar myndir frá hátíðarhöldunum.