Nýtt 10 íbúða fjölbýlishús mun rísa í Hallgerðartúni 51 á Hvolsvelli en þeir Hannes og Haukur tóku hjá GG Tré ehf formlega fyrstu skóflustunguna að byggingunni síðastliðinn föstudag. Í kjölfarið hóf stórvirk vinnuvél að grafa fyrir grunni hússins.
Um er að ræða fjölbýlishús með 10 íbúðum sem verða á bilinu 60-80 fermetrar að stærð. Íbúðirnar eru hannaðar með þarfir einstaklinga og ungra para í huga og henta því sérstaklega vel þeim sem eru að festa kaup á sinni fyrstu eign.
Mikil uppbygging á sér nú stað í Hallgerðartúni og fleiri fjölbýlishús eru í burðarliðnum. Má þar nefna raðhús við Hallgerðartún 53-57 sem er þegar í byggingu hjá fyrirtækinu SA smíðar ehf. Þessi uppbygging er skýrt merki um þann öra vöxt sem á sér stað á Hvolsvelli um þessar mundir, en svæðið stækkar hratt og fjölgun er bæði í íbúðarhúsnæði og nýjum fyrirtækjum.
Sveitarfélagið Rangárþing eystra fagnar þessari jákvæðu þróun og þeim nýju íbúðum sem munu koma til með að styrkja enn frekar byggðina á Hvolsvelli.
Raðhús í byggingu við Hallgerðartún