Íþróttafélagið Skyttur heldur sitt fyrsta pílumót fyrir iðkendur 17 ára og yngri laugardaginn 21. nóvember næstkomandi. Mótið fer fram í pílusal félagsins, Risinu, að Hvolsvegi 33 á Hvolsvelli. Mæting er klukkan 11:30 og hefst keppni á slaginu 12:00.

Góður vöxtur er í píluíþróttinni í Rangárþingi og hafa yngri iðkendur sýnt greininni mikinn áhuga. Píludeild Skyttna er dugleg við að halda úti fjölbreyttu starfi og býður upp á sérstakar æfingar fyrir 17 ára og yngri á miðvikudögum milli klukkan 16:00 og 17:30. Mætingin á þær æfingar hefur verið góð að undanförnu.

 

Á dögunum mætti Haraldur Birgisson, þjálfari U-18 ára landsliðsins í pílu, á æfingu hjá félaginu og tók að sér þjálfunina. Alls mættu 20 krakkar á aldrinum 7 til 15 ára á æfinguna. Haraldur sagði eftir æfinguna að mætingin hefði farið fram úr væntingum, krakkarnir væru áhugasamir og greinilegt væri að búið væri að byggja upp góðan grunn og góða aðstöðu á Hvolsvelli.

Mótið í nóvember gefur unga fólkinu gott tækifæri til að spreyta sig í keppni og öðlast meiri reynslu. Keppnin hefst á riðlakeppni þar sem spilað er 301 með einfaldri innkomu og einfaldri útkomu (SI/SO). Að riðlakeppni lokinni skiptast keppendur í tvo úrslitaflokka, A-úrslit og B-úrslit. Í A-úrslitum er spilað 501 með einfaldri innkomu og tvöfaldri útkomu (SI/DO), en í B-úrslitum er haldið áfram í 301 með einfaldri innkomu og útkomu. Þetta fyrirkomulag tryggir að allir þátttakendur fá að spila marga leiki og spreyta sig í úrslitum við hæfi. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í báðum úrslitaflokkum.

Gaman er að segja frá því að á mótinu verður notaður nýr hugbúnaður fyrir píluklúbba og píluspilara sem þróaður er á Hvolsvelli.

Mótsstjóri er Guðmundur Jónsson og er mótsgjaldið 2.500 krónur. Skráning fer fram í gegnum Abler-kerfið, en einnig er hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið gummi@skyttur.is. Ungir pílukastarar á svæðinu eru hvattir til að mæta og eiga góðan dag saman.