Foreldrafélag Hvolsskóla boðar til fundar með foreldrum barna í Hvolsskóla þar sem rætt verður um lengd skólaárs Hvolsskóla.

 

Skólastjóri Hvolsskóla fer yfir forsendurnar á bak við fjölda daga í skólaári Hvolsskóla, þar á eftir mun skólastjóri, sveitarstjóri og formaður Fjölskyldunefndar hlusta á og svara spurningum foreldra.

 

Fundurinn fer fram mánudaginn 31. mars 2025 kl 20:00 í litla salnum í Hvolnum.

 

Stjórn Foreldrafélags Hvolsskóla