Nýverið tók gildi frístundastyrkur í Rangárþingi eystra. Styrknum er ætlað að greiða niður íþrótta- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni á aldrinum sex til átján ára sem eru búsett í sveitarfélaginu.

Upphæð styrksins er 57.000 krónur á hvern iðkanda og gildir hann í eitt ár í senn, frá 1. janúar til 31. desember. Gott er að hafa í huga að ekki er hægt að safna upp eða flytja ónýttan styrk á milli ára.

Foreldrar og forsjáraðilar geta nýtt styrkinn á þægilegan hátt í gegnum skráningarkerfið Abler þegar barn eða ungmenni er skráð rafrænt í starf hjá íþrótta- eða tómstundafélagi. Við skráningu er hakað við að nota eigi frístundastyrk og valin sú upphæð sem óskað er eftir að nýta, eftir því sem inneign leyfir.

Ef um er að ræða félag sem er ekki skráð á Abler er hægt að skila inn kvittun á skrifstofu Rangárþings eystra. Heilsu-, íþrótta og æskulýðsnefnd tekur þá málið fyrir á fundi hjá sér og metur hvort viðkomandi námskeið sé styrkthægt.

Reglur um frístundastyrk Rangárþings eystra