- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Það var líflegt á skrifstofu sveitarstjóra á dögunum þegar Kristján Darri Antonsson bókaði viðtalstíma til að kynna hugmyndir sínar og teikningar að framtíðarskipulagi SS-vallarins á Hvolsvelli.
Kristján Darri mætti vel undirbúinn til fundarins með metnaðarfull áform. Samkvæmt hugmyndum hans er gert ráð fyrir vönduðum gervigrasvelli og stúkum allan hringinn í kringum völlinn, sem myndi breyta miklu fyrir aðstöðuna á svæðinu.
Það er mikilvægt fyrir sveitarfélagið að fá að heyra raddir yngri kynslóðarinnar og hvetja börn til að koma hugmyndum sínum og draumum á framfæri. Slík erindi sýna gott frumkvæði og gefa dýrmæta innsýn í hvað brennur á framtíðaríbúum Rangárþings eystra.
Sveitarfélagið þakkar Kristjáni Darra kærlega fyrir góða og ánægjulega heimsókn. Það er aldrei að vita nema fyrstu skrefin í átt að nýrri stúku við SS-völlinn verði stigin strax í sumar.