Í þessari viku hefjast framkvæmdir við endurbyggingu hringvegarins í gegnum Hvolsvöll. Um er að ræða mikilvægt verkefni þar sem helsta markmiðið er að auka umferðaröryggi allra vegfarenda, hvort sem þeir eru akandi, gangandi eða hjólandi, ásamt því að bæta umferðarflæði í bænum.

Verkið nær yfir um 800 metra kafla á hringveginum, frá afleggjara að tengivirki Landsnets austur fyrir Dufþaksbraut. Samhliða endurbyggingu akbrautarinnar verða lagðir nýir göngu- og hjólastígar og gatnamótin við Hvolsveg og Hlíðarveg endurbætt. Það er verktakafyrirtækið Þjótandi ehf. sem sér um framkvæmdina fyrir Vegagerðina, en verkið er unnið í samráði við Rangárþing eystra.

Heildarverktími er áætlaður um eitt ár og á verkinu að vera að fullu lokið 1. september 2027. Fyrsti áfanginn, sem unnið verður að fram í miðjan desember, felst einkum í jarðvegsskiptum og lagnavinnu utan núverandi vegar. Þegar líður á verkefnið á næsta ári verður farið í að malbika nýjar akreinar og færa umferðina yfir á þær til að hægt sé að ganga frá svæðinu sem nú er undir veginum.

Svona umfangsmikil framkvæmd í hjarta bæjarins mun eðlilega hafa áhrif á daglegt líf hjá íbúum, fyrirtækjum og vegfarendum. Lögð verður rík áhersla á að halda röskun í lágmarki og verður verkið unnið í vel skipulögðum skrefum. Þegar loka þarf fyrir tengingar við fyrirtæki á svæðinu, eins og Apótekarann, N1 og Krónuna, verða útbúnar bráðabirgðaleiðir á meðan og kappkostað að stytta lokunartíma eins og kostur er.

Við munum að sjálfsögðu upplýsa íbúa og aðra vegfarendur um allar lokanir og hjáleiðir með góðum fyrirvara, bæði hér á vef sveitarfélagsins og á vef Vegagerðarinnar. Við biðjum alla að sýna framkvæmdinni þolinmæði, virða merkingar og sýna sérstaka aðgát í nágrenni við vinnusvæðið næsta árið.

Hér má sjá er upplýsingasíðu fyrir verkefnið hjá Vegagerðinni: https://www.vegagerdin.is/verkefnin/framkvaemdir/hringvegur-um-hvolsvoll