- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Framkvæmdir eru nú farnar af stað við Dalsbakka 1 á Hvolsvelli, við hliðina á Kirkjuhvoli, en þar stendur jarðvinna nú yfir. Á lóðinni mun rísa nýr búsetukjarni fyrir fólk með fötlun og er það mikilvæg viðbót við þjónustu í sveitarfélaginu.
Um er að ræða einnar hæðar timbureiningarhús sem reist verður á staðsteyptum sökkli. Húsið er hannað á grundvelli algildrar hönnunar til að tryggja gott aðgengi fyrir alla. Í byggingunni verða sex sjálfstæðar íbúðir, ásamt góðri aðstöðu fyrir starfsfólk. Rýmið gerir ráð fyrir aðstöðu fyrir að minnsta kosti sex starfsmenn, enda mun 1-2 starfsmenn standa vaktina allan sólarhringinn til að sinna íbúum.
Frágangur utanhúss gerir ráð fyrir að útveggir verði klæddir með náttúrulitaðri, vatnsheldri Cembrit klæðningu ásamt Thermowood timburklæðningu. Lóðin sjálf er ríflega 1.600 fermetrar að stærð. Við húsið verður gert ráð fyrir sex bílastæðum. Þar af verða þrjú stæði sérstaklega ætluð hreyfihömluðum og verða þau í sömu hæð og gangstétt hússins til að auðvelda allt aðgengi. Einnig verður komið upp sorpaðstöðu fyrir sorpílát á lóðinni.
Við munum halda íbúum upplýstum um framgang verksins hér á heimasíðunni eftir því sem framkvæmdum miðar áfram.
