Á þriðjudaginn síðasta fór fram opið hús hjá Hvolsskóla þar sem nemendur elsta stigs buðu upp á fræðslutorg um umhverfismál.
Fræðslutorgið er haldið á þriggja ára fresti og var yfirheitið að þessu sinni umhverfismál.
Aðalmarkmið fræðslutorgsins er að fræða nærsamfélagið, að íbúar sveitarfélagsins verði meðvitaðir um hvernig hægt er að velja umhverfisvænni lífstíl.

Um hópaverkefni var að ræða og er verkefnið unnið þvert á fög í náttúrufræði, íslensku og ensku. Nemendur tóku meðal annars viðtöl, lögðu fyrir kannanir og unnu ýmis skapandi verkefni. Kynningarbásarnir voru 14 talsins og því mikill fróðleikur í boði.

Það var virkilega gaman að sjá hvað nemendurnir lögðu sig fram við verkefnið. Básarnir voru eins og sést á meðfylgjandi myndum virkilega flottir, skemmtilegir og fullir af fróðleik. Nemendurnir sökktu sér djúpt í sín viðfangsefni og voru virkilega fróðir um efnið.
Þau buðu upp á veitingar, leiki, skemmtun og mikinn fróðleik. Eins var virkilega skemmtilegt að sjá hvað unga fólkið okkar í sveitarfélaginu er frambærilegt og töluðu mörg hver blaðalaust. Mér leið eins og ég væri staddur á umhverfisráðstefnu hjá fullorðnum sérfræðingum.

Veittar voru þrjár viðurkenningar en undirritaður var í dómnefnd ásamt Maríu Rúnarsdóttur vistfræðingi og Sigrúnu Ágústsdóttur, forstjóra Náttúruverndarstofnunar. Valið var virkilega erfitt og þurfti dómnefndin svo mikinn tíma til að leysa það verkefni að börnin misstu nánast af skólabílnum heim.

Hóparnir Sjávardýr og plast, Umhverfismál í Rangárþingi eystra og Vatn sem auðlind fengu sérstakar viðurkenningar fyrir sína vinnu.

Hér fyrir neðan má nálgast myndir sem teknar voru af kynningarbásunum

Fræðslutorg elsta stigs um umhverfismál 2025

Sigurmundur Páll Jónsson
Markaðs- og kynningarfulltrúi