- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Rótarýklúbbur Rangæinga hefur, í góðri samvinnu við Skógasafn, unnið að mikilvægu menningarsögulegu verkefni allt frá árinu 2023. Afrakstur þeirrar vinnu lítur dagsins ljós þann 10. apríl næstkomandi kl. 16:00 þegar ný Austurleiðarstofa verður formlega opnuð í Samgöngusafni Skógasafns að viðstöddum gestum og fjölmiðlafólki.
Við opnunina verður falleg gömul Austurleiðarrúta formlega afhent Skógasafni til varðveislu um ókomna tíð. Um er að ræða nýsprautaða Benz rútu af árgerð 1962 sem ber fornbílanúmerið L 500.
Í Austurleiðarstofu verður hægt að kynna sér rúmlega 40 ára sögu Austurleiðar á þremur stórum upplýsingaspjöldum sem innihalda myndir og texta á bæði íslensku og ensku. Þar er jafnframt að finna stórt, nútímalegt málverk sem sýnir sjónarhorn út um rúðu á rútu á leið í Þórsmörk. Markmiðið með því er að tengja safnalist og málaralist á nýjan hátt og auka þannig gleði og ánægju safngesta.
Sýningin leggur áherslu á að miðla tíðarandanum frá því fyrir rúmum 60 árum og fram til síðustu aldamóta. Þar gefst gott tækifæri til að skoða þá miklu þróun sem varð í ferðamennsku á Íslandi á þessum tíma, ástand vega, bílakost ásamt því hvar gist var og borðað. Einnig hefur verið útbúið kynningarefni með umræðugrunni og spurningum fyrir gesti, en öll svörin er að finna inni í Austurleiðarstofu.
Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við Sigurlínu Sveinbjarnardóttur, formann Austurleiðarnefndar Rótarýklúbbs Rangæinga, í gegnum netfangið sigurlinsv@simnet.is.