Vegna margvíslegra áfalla sem dunið hafa yfir samfélag okkar síðustu mánuði býður kirkjan upp á viðtalstíma hjá fjölskylduráðgjöfum frá Sálgæslu-og fjölskylduþjónustu kirkjunnar. Fjölskylduráðgjafarnir munu hafa aðstöðu í Hvolnum á Hvolsvelli þriðjudagana 3. og 17. mars nk. Hægt er að panta viðtalstíma sem hér segir: Andrea s. 856-1551 andrea@kirkjan.is (verður til viðtals 3. og 17. mars) Guðrún s. 856-1561 gudrun.kolbrun.otterstedt@kirkjan.is (verður til viðtals 17. mars)

 

Heimafólk er hvatt til að nýta sér þessa fagþjónustu. En auk þess má minna á sálgæsluþjónustu hjá prestum í Rangárþingi.

Breiðabólsstaðarprestakall og Suðurprófastsdæmi