Síðastliðinn laugardag, þann 10. maí, fór fram Fjölmenningarhátíð Rangárþings í íþróttahúsinu á Hvolsvelli. Hátíðin var haldin af sveitarfélögunum Rangárþingi eystra og Rangárþingi ytra. Alls sýndu fulltrúar frá þrettán löndum fjölbreytta menningu svæðisins á hátíðinni en það voru: Moldóva, Rúmenía, Úkraína, Austurríki, Slóvakía, Tékkland, Pólland, Suður-Ameríka (Brasilía og Kólumbía), Mexíkó, Frakkland, Ísland, Portúgal og Tælandi.
Rúmlega 600 manns á hátíðinni
Það má með sanni segja að hátíðin hafi öll verið sú glæsilegasta, þátttakendur lögðu mikið á sig við að skapa skemmtilega stemmingu á sínum borðum þar sem hægt var að fræðast um sögu og menningu þessara þjóða. Fullt var út úr dyrum og má áætla að rúmlega 600 manns hafi heimsótt hátíðina.
Matur spilaði stórt hlutverk á hátíðinni en allar þjóðirnar buðu upp á mat frá sínum heimalöndum. Það fór því enginn svangur út frá hátíðinni og var það heldur svo að gestir komust ekki yfir það að smakka á öllum þeim kræsingum sem í boði voru.
Fjölbreytt dagskrá var einnig á sviði, þar sem þjóðir komu fram með atriði líkt og söng og fiðluspil sem og dans og nemendur frá Tónlistarskóla Rangæinga spiluðu og fluttu lög frá ýmsum þjóðum.
Ómetanlegt samstarf samfélagsins
Að hátíð sem þessari koma margar hendur, mikilvægt er að þakka þeim þátttakendum sem lögðu mikið á sig við að kynna sig og sín þjóðlönd, án þeirra væri ekki hægt að halda slíka hátíð. Kærar þakkir til Fjölmenningarráðs Rangárþings eystra sem átti veg og vanda að skipulagningu hátíðarinnar þau Gina, Jana, Ioan og Marlena sem og Justyna Lis kennara í Hvolsskóla. Einnig er vert að þakka Sláturfélagi Suðurlands fyrir þeirra stuðning við hátíðina.