- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Heimamenn komu saman í einstöku veðri í Tumastaðaskógi á sumarsólstöðum. Tilefnið var opnun Find Your Own River, listaverkefnis eftir listamannatvíeykið LEMOS + LEHMANN sem búa á Hvolsvelli.
Find Your Own River er sprottið úr persónulegu sambandi Pat Lemos og Lukas Lehmann við Tumastaði. Umhverfi skógarins hefur á undanförnum árum orðið mikilvægur hluti af þeirra daglega lífi og venjum. Staður þar sem þeim finnst þau vera velkomin, vernduð og í djúpum tengslum við landslagið.
Find Your Own River varð að veruleika með stuðningi frá Menningarsjóði Rangárþings eystra, í samvinnu við Land og skóg, og með rausnarlegum styrk frá Húsasmiðjunni. Þá hlaut verkefnið einnig styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands. Verkefnið sýnir hvernig samtímalist getur skapað nýjar leiðir til að upplifa kunnuglegan stað, leitt fólk saman og sýnt fram á menningarlegt og vistfræðilegt gildi landslagsins innan sveitarfélagsins.
Með þessu verkefni bjóða LEMOS + LEHMANN hverjum gesti að staldra við, hlusta af athygli, fara ókunnuga slóð og kannski finna sína eigin á.
„Skógur á Íslandi er undantekning, óvenjulegur staður og athvarf fyrir líkama og sál, sem er stöðugt berskjaldaður fyrir hinum víðáttumikla og takmarkalausa sjóndeildarhring,“ útskýra listamennirnir.
Verkefnið samanstendur af þremur tímabundnum skúlptúrum sem skapaðir voru fyrir mismunandi staði innan svæðisins og bjóða gestum að velta fyrir sér skynjun, athygli og samlífi við náttúruna.
Á opnun sýningarinnar fengu gestir kynningu á verkefninu og gekk svo hópurinn saman inn í skóginn í þögn. Þessi ganga gaf þátttakendum tækifæri til að leggja hversdagsleg samtöl til hliðar, verða meðvitaðri um skynfæri sín og finna dýpri tengingu áður en þeir mættu verkunum. Gestir gáfu sér tíma til að tengjast þeim og upplifa þau á sinn eigin hátt. Þeir lögðust niður, horfðu upp í gegnum trén, gengu inn í rými skúlptúranna, hlustuðu á skóginn og könnuðu nýjar leiðir til að tengjast landslaginu.
Fyrsta innsetningin, Immanence — The Earth, er láréttur skúlptúr úr eldfjallaefni og keramiksteypu. Hann býður gestum að leggjast niður og upplifa skóginn frá öðru sjónarhorni, finna fyrir stöðugleika jarðar á meðan horft er til himins.

Mynd Nicolas Ipiña
Transcendence — The Sky er myndað úr hringlaga uppröðun tréþátta sem meðhöndlaðir eru með lituðu lakki, náttúrulegum litarefnum og eldfjallaefni. Gestir geta stigið inn í verkið og upplifað hvernig það rammar inn landslagið.

Mynd Nicolas Ipiña
Þriðja verkið, Axis Mundi — The Human, var alfarið búið til úr lífrænum efnum, þar á meðal eldfjallaefni og jarðvegi. Það veltir fyrir sér manneskjunni sem tengingu milli jarðar og himins, hins efnislega og óefnislega. Skúlptúrinn er berskjaldaður fyrir veðri og vindum og mun veðrast hægt og rólega og verða aftur að jörð.

Mynd Nicolas Ipiña
Eftir gönguna hittust allir við eldstæðið í grillveislu sem Rangárþing eystra stóð fyrir. Þá gafst fólki tími til að skiptast á skoðunum, hitta nágranna og halda áfram samtölum um listaverkin og skóginn. Sveitarstjóri, markaðs- og kynningarfulltrúi sveitarfélagsins og fulltrúi frá Landi og skógi tóku einnig þátt í viðburðinum.
Innsetningarnar eru áfram aðgengilegar í Tumastaðaskógi. Sem tímabundin verk, berskjölduð fyrir rigningu, vindi, sólarljósi og mannlegum samskiptum, hafa þau þegar hafið hægfara umbreytingar- og niðurbrotsferli sitt. Gestum er velkomið að rekast á þau á meðan þeir rölta um skóginn.
Það er dýrmætt fyrir samfélagið að njóta krafta og sköpunargleði Pat og Lukas en nánari upplýsingar um þau og verkefnið má finna á heimasíðu Lemos + Lehmann og á Instagram síðu þeirra.
Byggðaþróunarfulltrúi