Sú nýbreyttni verður í júní að við ætlum að prófa að hafa féló opið tvisvar í viku. Félagsmiðstöðin Tvisturinn verður opin þriðjudaga og fimmtudaga allan júní mánuð. Opnunartími er frá kl. 17:00 – 22:00.

Krakkar sem voru á miðstigi og elsta stigi í Hvolskóla eru velkomnir í féló. Það er hægt að hittast, spila borðtennis, pool, pílu, spila borðspil, spila tölvuleiki, chilla, elda ofl ofl.

 

Umsjón með starfinu hefur Axel Edilon.