Þriðjudaginn 10. mars er farsældardagur fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk í Hvolsskóla og Öldunni en þá verður kynning á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og farsældarlögum fyrir nemendur. Arna Hrönn Aradóttir verkefnastjóri innleiðingar farsældar mun sjá um fræðsluna og mun hún ræða við nemendur beggja skólanna um morguninn í bekkjarhópum.

Klukkan 17 þennan sama dag eru foreldrar beggja skólanna boðaðir í Hvolsskóla og fá þar kynningu á Farsældarþjónustu eða lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021. Fundurinn verður líka á TEAMS ef einhver getur ekki mætt í sal skólans.

Markmið farsældarlaganna er að tryggja að börn og foreldrar hafi greiðan aðgang að þeirri þjónustu sem þau þurfa og að þau fái rétta aðstoð á réttum tíma, frá réttum aðilum. Tilgangur farsældardagsins er ekki síst að auka þekkingu meðal foreldra á því hvað í farsældarþjónustu felst og veita þeim upplýsingar um hvort hún getur nýst þeirra fjölskyldu.

Vonumst til að sjá sem flesta

 

Hægt er að kynna sér farsældarþjónustuna á vef Barna- og fjölskyldustofu: https://www.farsaeldbarna.is/