- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Byggðaþróunarfulltrúi Rangárþings, Uppsveita Árnessýslu og neðri hluta Árnessýslu bjóða til vinnustofu á Selfossi fyrir þá sem eru með hugmynd að verkefni sem gæti átt erindi í Uppbyggingarsjóð Suðurlands 2026.
Vinnustofan verður haldin fimmtudaginn 15. október kl. 09:00-11:00 í Bankanum, Austurvegi 20 á Selfossi, 3. hæð.
Á vinnustofunni fá þátttakendur innblástur, hagnýta fræðslu og persónulega aðstoð við að móta verkefnahugmyndir sínar. Farið verður yfir hvernig hugmyndir falla að áherslum sjóðsins og hvað þarf að hafa í huga við gerð góðrar styrkumsóknar.
Ekki þarf að mæta með fullmótaða hugmynd! Það er nóg að vera með eitthvað spennandi í kollinum sem þig langar að skoða betur.
Vinnustofan er líka gott tækifæri til að kynnast þjónustu byggðaþróunarfulltrúa á Suðurlandi.
Byggðaþróunarfulltrúar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) aðstoða einstaklinga, frumkvöðla, fyrirtæki og stofnanir við að þróa hugmyndir og verkefni.
Ráðgjöfin er fjölbreytt og getur meðal annars snúið að:
Að móta hugmyndir og koma þeim í framkvæmd.
Að finna styrki og fjármögnunarmöguleika.
Gerð viðskiptaáætlana og þróun fyrirtækja.
Menningarverkefnum, nýsköpun og frumkvöðlastarfi.
Undirbúningi styrkumsókna og yfirlestri þeirra.
Þjónustan er gjaldfrjáls í allt að 7 klukkustundir á almanaksári fyrir einstaklinga, frumkvöðla og fyrirtæki og allt að 20 klukkustundir fyrir stofnanir.
Við hvetjum áhugasama til að mæta á vinnustofuna og nýta sér ráðgjöfina.
Íbúar í Rangárþingi geta einnig haft samband við Hörpu Jónsdóttur, byggðaþróunarfulltrúa Rangárþings eystra og ytra, í gegnum netfangið harpa@hvolsvollur.is eða í síma 488-4200.
Nánari upplýsingar: