Skipulags- og umhverfisnefnd Rangárþings eystra óskar eftir tilnefningum frá íbúum um hver skuli hljóta umhverfisverðlaun sveitarfélagsins árið 2026. Verðlaunin eru veitt samkvæmt samþykkt sveitarfélagsins fyrir snyrtilegasta býlið, snyrtilegasta garðinn og snyrtilegasta fyrirtækið.


Frestur til að skila inn tilnefningum er til fimmtudagsins 13. ágúst 2026. Viðurkenningar verða veittar að venju við hátíðlega athöfn laugardaginn 29. ágúst, þegar íbúar fagna Kjötsúpunni.

Hér er hægt að skila inn tilnefningum