Eftir gott gengi Dímonar á HSK móti skákfélaga síðastliðinn janúar, þar sem A sveit Dímonar lenti í 1. sæti og B sveit Dímonar í 4. sæti lág leiðin á Íslandsmót skákfélaga.

Seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga fór fram um síðastliðna helgi 1. og 2. mars og fór mótið fram í Rimaskóla í Reykjavík.

Íþróttafélagið Dímon tók nú þátt í fjórða sinn og sendi til leiks tvær skáksveitir. A sveit Dímonar tefldi í 3. Deild eftir að hafa sigrað 4. Deildina í fyrra og B sveit Dímonar tefldi í 4. Deild.

Báðar sveitir stóðu sig mjög vel. Dímon A sigraði 3. Deildina með 28 vinninga og mun spila í 2. Deild að ári. Dímon B endaði í 10. Sæti af 28 sveitum með 24,5 vinninga.

Fyrir Dímon A tefldu: Magnús Pálmar Örnólfsson, Gergely Nemeth, Guðmundur Daðason, Stefán Arnalds, Árni Böðvarsson, Unnsteinn Sigurjónsson, Magnús Sigurjónsson og Anton Vignir Guðjónsson.

Fyrir Dímon B tefldu: Egill Steinar Ágústsson, Anton Vignir Guðjónsson, Markús Árni Vernharðsson, Reynir Björgvinsson, Jón Elli Bjarkason, Magnús Sigurjónsson, Bjarni Daníelsson, Arnfinnur Bragason, Benedikt Ernir Magnússon, Magni Marelsson, Brynjar Bjarkason, Helgi Svanberg Jónsson, Alexander Dagur Sigurðsson, Logi Thor Geirs, Daníel Arnfinnsson.

Öll einstök úrslit má sjá hér:

https://chess-results.com/tnr1010345.aspx?lan=1&art=0

https://chess-results.com/tnr1021767.aspx?lan=1&art=0