Vegna viðhalds á sorpbifreið og komandi páskafrís verða breytingar á áætlaðri sorphirðu í Rangárþingi eystra næstu daga. Breytingarnar snerta aðallega dreifbýlið, Ásahrepp og þéttbýlið á Hvolsvelli.

Við biðjum íbúa að huga vel að dagsetningum til að tryggja að tæming gangi greiðlega fyrir sig.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum íbúum fyrir sýndan skilning á meðan viðhaldi bifreiðarinnar stendur.