Bókakynning og fyrirlestur í Hvolnum, Hvolsvelli mánudaginn 19. maí næstkomandi kl. 20:00.
 
Um höfundinn og fyrirlesturinn:
Ég hef verið á botninum vegna hamlandi kvíða og líka upplifað stórkostlegt tímabil þar sem ég tók miklum framförum. Ég hef á allra síðustu árum verið að uppskera fyrir þá miklu vinnu sem ég lagði á mig. Ég ætla að segja ykkur mína sögu, allt frá botninum og til dagsins í dag þar sem lífið leikur við mig.
 
Það er mín von og trú að bókin mín muni koma mörgum til góðs sem glíma við kvíða en einnig þeim sem hafa aldrei upplifað hamlandi kvíða og skilja kannski ekki um hvað málið snýst.
Bókin byggist persónulegri frásögn um hvernig ég tókst á við kvíða og bæði mistókst en vann líka stóra sigra.
Höfundur er 25 ára gamall og starfar sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
 
Facebook viðburð má finna hér: