Í kringum sumardaginn fyrsta verður mikið um dýrðir víða á Suðurlandi þegar Barnamenningardagar Suðurlands fara fram dagana 22. til 26. apríl. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og skemmtilega viðburði fyrir börn og fjölskyldur um allt Suðurland.

Ljósmyndakeppni

Sérstakt sameiginlegt verkefni Barnamenningardaga er ljósmyndaverkefnið „Suðurland með augum barna“. Þar eru börn hvött til að taka myndir af nærumhverfi sínu. Markmiðið með verkefninu er að veita innsýn í upplifunarheim barna á og sjá umhverfið út frá þeirra sjónarhorni. Nánar má lesa um keppnina með því að smella hér og hvetjum við börn til þáttöku og aðstandendur til að aðstoða þau eins og þarf.

 

Dagskrá

  • Ljóð í sundlaug - Ljóð verða plöstuð og geta gestir kafað eftir ljóðunum í lauginn til að lesa. Verkefnið er unnið í samstarfi við bókasafnið.
  • Vígsla körfuboltavallarins - 22.apríl
  • "List í glugga" - Í leikskólanum munu börn hengja upp listaverk í gluggum skólans og geta gestir og gangandi notið þeirra frá götunni.
  • Ratleikur í bókasafninu
  • Þemadagar eru í Hvolsskóla 20. til 22. apríl
  • Vorhátíð foreldrafélagsins verður þann 22.apríl milli 16:00 og 18:00