- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
- Fréttir
Gervigrasvöllurinn við Hvolsskóla hefur nú fengið nýtt gras. Fyrirtækið Altís sá um verkið og uppsetningu á vellinum.
Völlurinn er mikið notaður af upprennandi fótboltastjörnum hér í sveitarfélaginu og er góð aðstaða sem þessi mikilvæg fyrir íþróttastarf unga fólksins okkar. Það er alltaf ánægjulegt að sjá hversu margir nýta sér svæðið til að æfa sig og spila saman. Hver veit nema við eigum eftir að sjá einhverja af þessum duglegu krökkum á HM í fótbolta einn daginn.
Þess má einnig geta að nýlega var frisbígolfvöllurinn okkar stækkaður úr 9 holum í 18. Þetta er mikið fagnaðarefni, enda er völlurinn nú sá tíundi á landinu sem hefur 18 körfur.
Bæði nýja gervigrasið og stækkun frisbígolfvallarins eru mikilvæg viðbót við þá útivistaraðstöðu sem er í boði í sveitarfélaginu. Við vonum að iðkendur og íbúar njóti þess vel að hreyfa sig og spila á þessum svæðum.

